Í dag opnaði Kristján Möller, samgönguráðherra, formlega nýja skoðunarstöð Frumherja við Hólmaslóð.
Í ávarpi fagnaði ráðherra tilkomu stöðvarinnar sérstaklega. Sagði hann samgönguyfirvöld leggja mikla áherslu á vandaða skoðun ökutækja. Ef öryggisbúnaður ökutækis væri ekki í fullkomnu lagi gæti það verið varasamt í umferðinni. Hann ræddi líka um nýjar reglur sem settar voru í fyrra varðandi skoðun bifreiða sem hann taldi þegar hafa skilað árangri og leitt til skilvirkara eftirlits með bílaflota landsmanna.
Að loknu ávarpi sínu klippti ráðherra á borða á skoðunarbrautinni og naut hann við það aðstoðar starfsmanna Frumerja. Þá ók hann fornbíl af gerðinni Chevrolet Bel Air, árgerð 1956, inná brautina og var bíllinn skoðaður í kjölfarið.
Loks óskaði ráðherra Frumherja hf. til hamingju með nýja og glæsilega stöð.