Eftirfarandi grein dr. Róberts Hlöðverssonar, sviðsstjóra matvælasviðs, var birt í Ægi, sérblaði um sjávarútveg, fimmtudaginn 26. febrúar síðastliðinn. Þar færir hann rök fyrir því að færa beri framkvæmd alls matvælaeftirlits til faggiltra skoðunarstofa.
Frumherji hf. hefur starfrækt faggiltar skoðunar- og prófunarstofur undanfarna tvo áratugi í skoðunum á ökutækjum, rafmagni, sjávarútvegsfyrirtækjum, skipum og prófun á rennslismælum og vogum. Fyrirtækið skilgreinir sig því sem sérhæft skoðunar-og prófunarfyrirtæki.
Mjög góð reynsla er af þessari starfsemi og almenn ánægja á meðal eftirlitsþega. Það að láta óháðan faggiltan þriðja aðila annast framkvæmd eftirlitsins fyrir hönd stjórnvaldið hefur í för með sér marga kosti og má þar nefna;
- Réttarstaða allra aðila verður betri þar sem það er ekki sami aðilinn sem setur reglurnar, fylgist með að farið sé eftir þeim og sakfellir eftirlitsþegann ef hann brýtur af sér.
- Faggilding tryggir hlutleysi, gagnsæi og hæfni eftirlitsaðilans.
- Ódýrara kerfi bæði fyrir eftirlitsþega og skattgreiðendur
- Skilvirkara eftirlit.
- Meiri sveigjanleiki til að bregðast við breyttum aðstæðum.
- Samkeppni á grundvelli gæða.
Starfsemin er hins vegar mjög viðkvæm fyrir ákvörðunum stjórnvalda hverju sinni. Sem dæmi um það má nefna einhliða ákvörðun stjórnvalda um að hætta skoðunum smábáta undir 15 brt. og að vogir og eldsneytisdælur yrðu einungis prófunarskyldar annað hver ár í stað árlega. Auk þess sem breytingar hafa verið gerðar á skoðunarskyldu bifreiða.
Ný matvælalöggjöf, sem nýverið var samþykkt á Alþingi, hefur í för með sér miklar breytingar á eftirliti með framleiðslu matvæla og fóðurs. Allt eftirlit á þessu sviði hefur verið fært undir sjávarútvegs-og landbúnaðarráðuneytið, en var áður hjá 3 ráðuneytum. Matvælastofnun (Mast) hefur nú yfirumsjón með þessum málaflokki fyrir hönd ráðuneytisins. Þessar skipulagsbreytingar eru mjög af hinu góða en því miður er framkvæmd eftirlitsins enn að mestu leyti í höndum opinberra aðila. Eftirlitsmenn Mast sinna mjólkurbúum og kjötvinnslum og hluta sjávarútvegsfyrirtækja. Heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga sinna verslunum og öðrum eftirlitsskyldum fyrirtækjum. Sláturhús og bændabýli eru á könnu eftirlitsdýralækna og skoðunarstofur framkvæma eftirlit í sjávarútvegsfyrirtækjum.
Í nýju matvælalöggjöfinni er stjórnvöldum heimilt að fela faggiltum skoðunarstofum framkvæmd eftirlitsins. Ráðuneytið hefur falið Mast að ákvarða hvort nýta eigi þessa heimild. Ákvörðun Mast á að byggja á faglegum jafnt sem hagrænum forsendum.
Sé tekið mið af þeirri jákvæðu reynslu sem fengist hefur af starfsemi faggiltra skoðunarstofa á undaförnum áratugum er tvímælalaust hagstæðast að fela faggiltum skoðunarstofum framkvæmd alls þess eftirlits sem lögin ná yfir. Forsvarsmenn Samtaka atvinnulifsins, Landsambands íslenskra útvegsmanna og Samtaka fiskvinnslustöðva hafa allir lýst yfir einróma stuðningi við þessa leið, sem sýnir glögglega vilja eftirlitsþeganna. Einnig má benda á yfirlýstan vilja stjórnvalda um að draga úr rekstri hins opinbera með því að fela einkaaðilum eins mörg verkefni og kostur er. Í þessu ljósi er skorað á stjórnvöld og forsvarsmenn Mast að íhuga þennan kost vandlega áður en ákvörðun verður tekin í málinu á næsta ári.