Um næstu helgi, föstudaginn 5. mars og laugardaginn 6. mars, verður haldin sýningin
VIÐHALD 2010 í Vetrargarðinum í Smáralind. Sýningin er upplýsingatorg þar sem einstaklingar, húsfélög og húseigendur geta fengið svör við spurningum um allt það sem lýtur að viðhaldsmálum. Fjöldi fyrirtækja og opinberra aðila verða á sýningunni og veita gagnlegar upplýsingar fyrir húseigendur sem stefna að endurbótum og/eða viðahaldi á næstu mánuðum.
Frumherji og dótturfélag þess,
Hreinsibílar, munu taka þátt í sýningunni og verða með sameiginlegan bás. Frumherji mun leggja áherslu á rafmagnsöryggi og segulsviðsmælingar. Til sýnis verða m.a. mælitæki og ljósmyndir af rafmagnstöflum og tilheyrandi útbúnaði.
Hreinsibílar munu leggja áherslu á fóðrum lagna í heimahúsum og ástandsskoðun frárennslislagna. Fyrirtækið hefur sérhæft sig í endurgerð lagna án uppgraftar í 15 ár. Aðferðin sem er notuð er byltingarkennd og veldur litlu raski því lagnirnar eru lagfærðar innan frá. Kostir þessarar aðferðar eru ótvíræðir þar sem m.a. er hægt að lagfæra lagnir á stuttum tíma þar sem ekki þarf að fara út í tímafrekan og kostnaðarsaman uppgröft eða múrbrot með tilheyrandi raski. Efnið í lagnaklæðningunni er lagað að aðstæðum á hverjum stað þannig að framkvæmdirnar valda litlu ónæði og lausnin er endanleg. Á sýningunni verður sýnt kynningamyndband með upplýsingum um fóðrunina og aðferðirnar við slíka vinnu.
Hreinsibílar voru fyrsta fyrirtækið hér á landi til að kynna myndbandstækni við skoðun lagna. Myndbandstökubílar fyrirtækisins og upptökutæknin nýtast við margvíslegar aðstæður, s.s. í skólplögnum, loftstokkum, hitaveiturörum, vatnsleiðslum og borholum. Tæknin veitir nákvæmar upplýsingar um ástand lagnar án þess að stofnað sé til óþarfs kostnaðar við uppgröft og jarðrask. Tæknin er einföld og örugg og með henni er t.d. hægt að meta ástand lagna í eldri hverfum og húsum.