Þú ert hér: Forsíða > Fréttir
Ný gjaldskrá Umferðarstofu varðandi ökupróf
4.1.2012

Um áramótin tók gildi ný gjaldskrá Umferðarstofu varðandi umsýslugjöld ökuprófa, en þau eru hluti þess gjalds sem próftaki greiðir þegar hann tekur ökupróf. Umsýslugjöld þessi urðu til árið 2005 og hafa verið innheimt með prófgjöldum, kr 500 með skriflegum prófum og kr 1.000 með verklegum prófum. Gjöldin renna til Umferðarstofu til að standa straum af kostnaði stofnunarinnar vegna ökuprófa.

Nú um áramótin hækkuðu umsýslugjöldin umtalsvert, fóru í kr 800 fyrir skrifleg próf kr 1.600 fyrir verklega prófið. Þetta þýðir að skriflegt próf kostar nú alls kr 2.900 (var kr 2.600 áður) og verklegt próf fyrir almenn ökuréttindi kostar kr 8.000 (var kr 7.400 áður).

Nánar má sjá verðskrána fyrir ökuprófin hér á heimasíðunni með því að smella hér.

Senda á facebook

Frumherji Hesthálsi 6-8 110 Reykjavík Sími: 570 9000 Fax: 570 9002 Kennitala: 470297-2719 frumherji@frumherji.is