19.1.2012
Færanleg skoðunarstöð Frumherja er nú í sinni árlegu yfirferð til stórra viðskiptavina á höfuðborgarsvæðinu. Þessir viðskiptavinir eru aðallega bifreiðaumboð, bílasölur og bílaleigur. Kunna þeir vel að meta að fá skoðunarstöðina í heimsókn til sín frekar að aka öllum sínum bílaflota í hefðbundnar skoðunarstöðvar.
Það síður en svo auðvelt að athafna sig með stórt tæki eins og færanlegu skoðunastöðina í þeirri vetrartíð sem ríkt hefur í höfðuðborginni upp á síðkastið. Starfsmenn skoðunarstöðvarinnar eru hinsvegar annálaðir harðjaxlar sem láta engan bilbug á sér finna í glímunni við vetur konung.
Á myndinni má sjá færanlegu skoðunarstöðina að störfum hjá einum viðskiptavina Frumherja í Reykjavík nú í janúar.
Senda á facebook