27.1.2012
Í því óvenjulega fannfergi sem herjað hefur á okkur á höfuðborgarsvæðinu og víðar hefur komið í ljós að ökumenn voru illa við slíku búnir. Líklega hafa tvær kynslóðir ökumanna alist hér upp sem ekki hafa reynslu og þekkingu á því að aka í miklum snjó og ófærð.
Starfsmenn okkar í bifreiðaskoðunum og ökuprófum hafa fengið fyrirspurnir frá viðskiptavinum upp á síðkastið varðand búnað bíla og akstur. ABS hemlar (hemlar með læsivörn) eru dæmi um búnað sem ökumenn hafa ekki þekkingu til að nýta rétt og telja jafnvel sumir að um bilun sé að ræða þegar fetillinn fer að titra við virkni búnaðarins.
Hér að neðan eru nokkur gagnleg ráð fyrir ökumenn í vetrarakstri:
- Gefum okkur góðan tíma til að komast leiðar okkar. Það er vægast sagt óráðlegt að ætla sér sama tíma og venjulega til að komast t.d. til vinnu.
- Nauðsynlegt er að hreinsa snjó vel af öllum bílnum áður en lagt er af stað, sérstaklega af rúðum, speglum, ljósum og númeraplötum.
- Huga þarf vel að næsta nágrenni og reyna að átta sig á því hvort líkur séu á því að bíllinn komist úr stæði og fyrsta spölinn frá heimilinu. Oftast eru bílastæði og húsagötur erfiðastar yfirferðar og fastir yfirgefnir bílar tefja fyrir snjómokstri og öðrum farartækjum. Farið því aldrei af stað nema vera nokkuð viss um að komast alla leið.
- Gagnlegt er að hafa salt- eða sandpoka í skottinu til að strá við dekkin ef bíllinn festist. Skófla getur einnig komið sér afar vel.
- Gera verður ráð fyrir mun lengri hemlunarvegalengd, passa að hafa lengra bil milli bíla en venjulega og stilla hraðanum í hóf. Flest umferðarslys verða vegna vanmats á þessum atriðum í ófærð og hálku.
- Ökumenn sem eru vanir að aka í miklum snjó minnka oft loftþrýstinginn í dekkjunum (á drifás) til að fá meira veggrip. Þetta krefst þó nokkurrar þekkingar og loftmælis.
- Ef bíllinn festist skal setja í lægsta gír og gefa lítið eldsneyti, jugga bílnum afturábak og áfram þar til hann losnar.
- Með því að þvo dekkin af og til með tjöruleysi er hægt viðhalda hámarks gripi dekkjanna.
Sýnum hvort öðru tillitsemi, hjálpumst að og brosum. Þetta gengur yfir áður en við vitum af.
.jpg)
Senda á facebook