Skoðunarstöðvar og afgreiðslutími
Sjá töflu yfir
opnunartíma stöða. Einnig á forsíðu vefsins í tökkunum "Opnunartímar" og "
Skoðunarstöðvar". Fram koma upplýsingar um staðsetningu, afgreiðslutíma, símanúmer og skoðunarþjónustu einstakra skoðunarstöðva um land allt.
Skylduskoðun ökutækja Allar skylduskoðanir ökutækja eru framkvæmdar hjá ökutækjasviði. Um er að ræða aðalskoðanir, skráningarskoðanir og breytingaskoðanir, og endurskoðanir vegna þessara skoðana.
Ástandsskoðun ökutækjaFrumherji býður upp á sérstaka ástandsskoðun sem þróuð hefur verið hjá ökutækjasviði. Þessi skoðun er mun nákvæmari en venjuleg skylduskoðun og tekur til fleiri þátta. Nokkrar tegundir eru til af ástandsskoðunum, þar á meðal sérstakar söluskoðanir vegna bílaviðskipta.
Tjónaskoðun og tjónamat ökutækjaÖkutækjasvið hefur gert samning við nokkur tryggingafélög um að sjá um tjónaskoðanir og tjónamat fyrir þau. Viðskiptavinir koma þá með bílinn til Frumherja og þar er hann skoðaður og tjónið metið.
Skráningarstarfsemi vegna ökutækjaFrumherji hefur með höndum ýmsa skráningarstarfsemi vegna ökutækja Í umboði Umferðastofu. Meðal þess sem ökutækjasvið hefur með höndum er meðhöndlun skráningarmerkja (innlögn og sala merkja), nýskráning og endurskráning á ökutækjum, móttaka eigendaskipta, svo fátt eitt sé nefnt.
Rekstur sjálfvirkrar bílaþvottastöðvarÁ Hesthálsi í Reykjavík er sjálfvirk þvottastöð fyrir fólksbíla. Í boði er sumarþvottur, vetrarþvottur og þvottur án bursta. Í öllum þvottakerfum er létt bón og þurrkun.
Senda á facebook