Þú ert hér: Forsíða > Þjónusta > Bílahjálp
Bílahjálp
Árin 2007-2009 átti Frumherji stóran hlut í fyrirtækinu Viking Redningstjeneste AS í Noregi. Félagið sinnir einkum bílaþjónustu og aðstoð á vegum úti að beiðni tryggingarfélaga, bílaumboða eða bíleigendanna sjálfra. Viking er um hálfrar aldar gamalt fyrirtæki og hefur því gríðarlega reynslu af vegaþjónustu af þessu tagi. Höfuðstöðvar þess eru í Oslo en hefur svo samning við yfir 150 þjónustustöðvar sem reknar eru á viðskiptaleyfum Viking (franchise) um allan Noreg.

Frá upphafi hefur það verið stefna Frumherja að hefja starfsemi á sviði bílahjálp hérlendis sem grundvallast á þeirri reynslu og samböndum sem félagið byggði upp í Noregi. Árið 2009 tók Frumherji að sér nokkur verkefni á sviði bílahjálpar sem Viking hafði samið um að sinna á Íslandi. Þrátt fyrir sölu Frumherja á Viking var ákveðið að halda samstarfinu áfram og byggja þjónustuna frekar upp.

Um mitt ár 2010 náðist veigamikill áfangi í þeim efnum þegar gerður var samningur við tryggingafélagið VÍS um bílahjálparþjónustu. Hófst þar með starfsemi bílahjálparsviðs Frumherja af fullum krafti. Þjónustan er nú markaðsett undir nafninu Tryggur - bílahjálp (sjá nánar á www.bilahjalp.is). Allir geta fengið þjónustu en viðskiptavinir VÍS njóta sérkjara (Bílahjálp VÍS).

Sviðsstjóri bílahjálparsviðs er Jón Hjalti Ásmundsson.
Senda á facebook

Þessa stundina eru eftirfarandi störf laus til umsóknar:

Ökutækjasvið: Skoðunarmaður á Selfoss

Sækja um

Frumherji Hesthálsi 6-8 110 Reykjavík Sími: 570 9000 Fax: 570 9002 Kennitala: 470297-2719 frumherji@frumherji.is