Ýmislegt getur komið upp á sem veldur því að ökuferðin endar snögglega eða jafnvel að ekki var hægt að komast af stað. Vandamálin eru af ýmsum toga, en sum algengari en önnur:
- Rafgeymir tómur - fá start eða annan geymi.
- Eldsneytisvandamál - eldsneyti vantar eða rangt eldsneyti sett á ökutækið.
- Ekki hægt að komast inn í ökutæki - hurðir frostnar, lykill týndur, læstur inni í ökutækinu eða lykill brotinn á skrá.
- Hjólbarðar - loftlaust eða sprungið dekk, hjólum stolið, varadekk loftlaust eða vantar, erfiðlega gengur að losa dekk, eða verkfæri passa ekki eða vantar.
- Gluggar og lúgur - rúður fastar niðri, topplúga föst opin, rúða brotin og nauðsynlegt að loka.
- Rúðuþurrkur eða ljós - fá aðstoð við að koma rúðuþurrkum eða ljósum í gang séu aðstæður þannig.
Með því að hafa samband við Trygg - bílahjálp er vandamálið greint og reynt að leysa það í gegnum símann, t.d. með því að benda á einhverja í nágrenninu sem geta aðstoðað. Annars eru sérhæfðir þjónustuaðilar sendir á staðinn sem reyna að leysa málið á staðnum eða ökutækið hreinlega flutt á viðgerðarstað að ósk viðskiptavinar. Síminn er opinn allan sólarhringinn, alla daga ársins.
Þjónusta bílahjálparsviðs nær til alls landsins, eða nánar tiltekið til tilvika sem koma upp á og við alla opinbera vegi (þjóðvegi, stofnvegi, safnvegi, tengivegi og almenna vegi, sbr. vegalög nr 45/1994). Þjónustan nær þó ekki til landsvega nema þeir séu opnir (landsvegir tilheyra ekki neinum af framangreindum vegflokkum, eru vegir yfir fjöll og heiðar, þar á meðal vegir sem tengja saman landshluta, vegir innan þjóðgarða og vegir að fjölsóttum ferðamannastöðum - einungis gert ráð fyrir árstíðabundinni umferð og minna eftirliti og minni þjónustu en á öðrum þjóðvegum).
Sjá nánar á sérstakri heimasíðu bílahjálparinnar, www.bilahjalp.is.
Senda á facebook