Þú ert hér: Forsíða > Þjónusta > Bílahjálp > Verðskrá og sérkjör
Verðskrá og sérkjör
Verðskrá er að finna á heimasíðu bílahjálparinnar, www.bilahjalp.is, undir Verðskrá og svo Almenn verðskrá.

Sérkjarasamningar eru í gildi við eftirtalda aðila:

Vátryggingafélag Íslands (VÍS)

Tryggingatakar með F plús eða heimilistryggingu á ferð í einkabílum, eða eru farþegar í einkaökutækjum, fá 70% afslátt af þéttbýlisaðstoð og 50% afslátt af björgunaraðstoð og akstursgjaldi. Fjölskylda tryggingatakans fær einnig sama afslátt, þ.e. maki og börn á heimilinu. Sjá nánar á heimasíðu bílahjálparinnar undir Sérkjör VÍS.

Einkaökutæki eru bílar, bifhjól og vagnar (bæði venjulegar kerrur og líka húsvagnar) sem eru í eigu eða umráðum einstaklinga, eru undir 3,5 tonn að leyfðri heildarþyngd og ekki lengri en 7 metrar. Þetta eru því allir venjulegir fjölskyldubílar, jeppar og jafnvel húsbílar, allflestar kerrur og húsvagnar, og öll bifhjól.

Frumherji - bifreiðaskoðun

Tryggir viðskiptavinir bifreiðaskoðunar Frumherja auk próftaka ökuprófa, njóta 25% afsláttar af þjónustu bílahjálparinnar. Afsláttarkjörin gilda fyrir þá einstaklinga á einkaökutækjum sem hafa keypt sér skoðunarþjónustu fyrir ökutæki eða ökupróf fyrir að lágmarki 5000 krónur á síðustu 12 mánuðum (þó ekki fyrir 01.02.2011). Afsláttarkjörin gilda jafnframt fyrir einkaökutæki sem keypt hefur verið skoðunarþjónusta fyrir á sama tímabili og fyrir sömu lágmarksupphæð. Sjá nánar á heimasíðu bílahjálparinnar undir Sérkjör Frumherja

Einkaökutæki eru bílar, bifhjól og vagnar (bæði venjulegar kerrur og líka húsvagnar) sem eru í eigu eða umráðum einstaklinga, eru undir 3,5 tonn að leyfðri heildarþyngd og ekki lengri en 7 metrar. Þetta eru því allir venjulegir fjölskyldubílar, jeppar og jafnvel húsbílar, allflestar kerrur og húsvagnar, og öll bifhjól.


Senda á facebook

Þessa stundina eru eftirfarandi störf laus til umsóknar:

Ökutækjasvið: Skoðunarmaður á Selfoss

Sækja um

Frumherji Hesthálsi 6-8 110 Reykjavík Sími: 570 9000 Fax: 570 9002 Kennitala: 470297-2719 frumherji@frumherji.is