Þú ert hér: Forsíða > Þjónusta > Löggildingar og prófanir
Löggildingar og prófanir
Prófunarstofa Frumherja hf. annast prófanir á mælitækjum af ýmsum gerðum, ásamt löggildingum á löggildingarskyldum mælitækjum auk sannprófana á ósjálfvirkum vogum. Prófunarstofan er sérstakt starfssvið innan Frumherja hf.

Prófunarstofan hefur yfir að ráða tækjabúnaði til prófana á vogum af öllum stærðum og gerðum sem notaðar eru hérlendis, jafnt sjálfvirkum sem ósjálfvirkum, prófbekk til prófunar á algengustu stærðum vatnsmæla, prófbekk til prófunar á öllum gerðum rafmagnsmæla, og færanleg mæliker til prófunar á eldsneytisdælum fyrir bensín/diesel og aðra vökva.

Starfsemin nær til allra landshluta og er þjónusta veitt á öllum þéttbýlisstöðum landsins að lágmarki einu sinni á ári (reglubundnar ferðir). Þó er aðstaða til prófunar á rafmagns- og vatnsmælum eingöngu í prófbekkjum prófunarstofunnar í Reykjavík.

Sviðsstjóri prófunarstofunnar er Valtýr Guðbrandsson.
 

Senda á facebook

Frumherji Hesthálsi 6-8 110 Reykjavík Sími: 570 9000 Fax: 570 9002 Kennitala: 470297-2719 frumherji@frumherji.is