Löggilding mælitækja
Öll mælitæki sem notuð eru í viðskiptum verða að vera löggilt. Prófunarstofan býður upp á löggildingu á vogum, rennslismælum fyrir bensín/diesel og mjólk, vínmálum, raforkumælum og vatnsmælum fyrir heitt og kalt vatn.
Prófun mælitækja
Prófunarstofan býður einnig upp á þá þjónustu að kanna nákvæmni ýmissa mælitækja. Sum mælitæki er ekki heimilt að löggilda (t.d. ef þau uppfylla ekki nákvæmniskröfur stjórnvalda að einhverju leyti) en eigendur þeirra vilja samt fá upplýsingar um hversu nákvæm þau eru.
Smásala á lóðum
Prófunarstofan hefur umboð fyrir þýska lóðaframleiðandann Haigis og sér um að útvega lóð af öllum stærðum og gerðum.
Tilnefndur aðili 0947
Prófunarstofan hefur hlotið tilnefningu Evrópusambandsins til að annast frumsannprófun eða fyrstu löggildingu ósjálfvirkra voga og hefur tilnefningarnúmerið 0947.
Áður en vog er tekin í notkun verður hún að gangast í gegnum og standast sannprófun, þetta á þó einungis við vogir sem eru notaðar við starfsemi þar sem krafist er löggiltra voga s.s. í hverskonar verslun.
Þjónusta við orku- og veitufyrirtæki
Þjónusta Frumherja við orku- og veitufyrirtæki er stór þáttur í starfsemi
Frumherja. Samantekt á hinum ýmsu þjónustuþáttum er að finna á slóðinni www.frumherji.is/veitur, en prófunarstofan sinnir þar mikilvægu hlutverki.
Senda á facebook