Í verðskránni er að finna almennt verð á þjónustunni án virðisaukaskatts. Lögð er áhersla á að gefa fast verð í einstaka þjónustuþætti. Minnt er á afsláttarkjör sem fastir viðskiptavinir njóta hjá Frumherja, einnig er hægt að gera sérstaka samninga um löggildingarþjónustu til að njóta hagstæðra kjara.
Vakin er athygli á að innifalin í verðum fyrir löggildingu er löggildingargjald sem rennur til Neytendastofu, en það er 25% ofan á verð fyrir þjónustu Frumherja.
Prófunarstofan hefur einnig til sölu samanburðarlóð. Um er að ræða ný lóð í nákvæmnisflokki M1 í stærðum á bilinu 100 mg til 20
kg. Jafnframt eru til sölu notuð lóð frá 2 g sem tekin eru úr rekstri af
útlitsástæðum eða af því að þau eru óstillanleg og komin út úr nákvæmnismörkum.
Senda á facebook