Þú ert hér: Forsíða > Þjónusta > Matvælasvið
Matvælasvið
Samkvæmt ákvörðun stjórnvalda fluttust allar skoðanir á landvinnslum og skipum frá faggiltum skoðunarstofum til Matvælastofnunar þann 1. mars 2011.

Matvælasvið Frumherja tekur að sér hlutverk gæðastjóra, gerð gæðahandbóka, námskeið um gæðamál, úttektir á fiski og fiskafurðum, tjónamat fyrir tryggingarfélög, tímabundna ráðgjöf um vinnslu, skoðanir á vinnsluumhverfi og vinnsluferlum ásamt úttektum samkvæmt BRC Global Food staðlinum. Nánari upplýsingar um þessa þjónustu má finna í sérstökum bæklingi.

Matvælasviðið varð til úr Nýju skoðunarstofunni ehf. Fyrirtækið var stofnað 1993 og var fyrstu árin í eigu hagsmunaaðila innan sjávarútvegsins og sinnti skoðunum á hreinlæti og aðbúnaði hjá framleiðendum sjávarafurða. Árið 1998 sótti fyrirtækið um faggildingu á starfsemi sinni, sem kallaði á breytingu á eignaraðild. Þetta leiddi til þess að Frumherji hf. keypti allt hlutafé fyrirtækisins. Nýja skoðunarstofan var rekin sem sjálfstætt dótturfélag Frumherja hf. þar til þann 1. júní 2003 að ákveðið var að sameina félögin undir nafni Frumherja hf í matvælasviði. Þessari starfsemi lauki svo 1. mars 2011 þegar stjórnvöld ákváðu að flytja allar skoðanir á landvinnslum og skipum frá faggiltum skoðunarstofum til Matvælastofnunar. Matvælasvið Frumherja hefur því hætt allri starfsemi á þessu sviði en mun snúa sér að ráðgjafar- og fræðslustarfsemi fyrir matvælafyrirtæki.

Sviðsstjóri matvælasviðs er Róbert Hlöðversson.
Senda á facebook

Frumherji Hesthálsi 6-8 110 Reykjavík Sími: 570 9000 Fax: 570 9002 Kennitala: 470297-2719 frumherji@frumherji.is