Starfsmenn matvælasviðs hafa mikla reynslu í úttektum á fiski og fiskafurðum. Helstu notendur þessarar þjónustu eru framleiðendur, kaupendur og útflytjendur sjávarafurða. Trygggingafélög hafa einnig nýtt sér þessa þjónustu í ríku mæli við tjónamat.
Mat á grásleppuhrognum
Framleiðendur eða útflytjendur grásleppuhrogna láta taka út mestan hluta grásleppuhrogna áður en þau eru seld úr landi eða fara til frekari vinnslu innanlands.
Frá því hrognin voru söltuð og þar til úttekt fer fram þurfa að vera liðnir a.m.k. 7 sólarhringar. Úttektin hefst á því að úr safninu er ákveðinn fjöldi tunna valinn tilviljunarkennt til viktunar og skoðunar. Venjulega er vigtuð 1 tunna af hverjum 10 en þó er aldrei vigtað minna en tvær tunnur úr hverju safni. Komi fram mikill munur á þyngd þessarar tveggja tunna skal vigta eina í viðbót og láta meðaltalið gilda sem vigt safnsins. Gæta skal þess að allt vatn sé sigið af hrognunum áður en þau eru vigtuð. Yfirleitt þurfa hrognin að vera ca. 20. mín. á sigtum. Pækilstyrk og hitastig hrogna í úrtakstunnunum er mælt. Einnig er hreinsun hrognana metin, aðskotahlutir, bragð, áferð, litur og ferskleiki. Nettovikt hrognana og aðrar upplýsingar eu skráðar á matsvottorðið. Vottorðið er í þríriti, eitt fer til framleiandans, eitt til verkbeiðanda og eitt til Frumherja.
Eftir að vigtun tunna er lokið eru allar tunnur í safninu opnaðar og hrognin metin m.t.t. lyktar lits og áferðar. Metið er hvort nægjanlegur pækill sé í tunnunum og hvort yfirborð hrognana sé farið að þrána. Skoðunarmaður fer með handlegginn ofaní hverja tunnu og athugar þéttleika og hlutfall pækils og hrogna. Verði hann var við eitthvað óeðlilegt er viðkomandi tunnu tekin til hliðar og metin nánar. Í framhaldinu er ákveðið hvort tunnan skuli dæmd frá eða hvort ástæða þykir til að taka sýni og senda í efna-og gerlagreiningu. Skoðunarmaður tekur þá sýni í gerilsneytt ílát og kemur því á rannsóknarstofu svo fljótt sem auðið er. Þegar niðurstaða greiningar liggur fyrir ákvarðar skoðunarmaður í samráði við verkanda hvað gera skuli við viðkomandi hrogn
Þegar allt safnið hefur verið skoðað á þennan hátt bætir skoðunarmaður pækli í tunnurnar þannig að hann fljóti vel yfir hrognin. Því næst lokar hann þeim dyggilega og merkir með merkimiða. Á merkimiðanum kemur fram á ensku, afurðarheiti, samþykkisnúmer, framleiðanda, nafn söluaðila, framleiðsludagsetning, upplýsingar um rotvarnarefni, dagsetning úttektar, upphafsstafir skoðunarmanns og nafn og logó Frumherja. Þegar tunnum hefur verið lokað eru þær innsiglaðar með palstinnsiglum Innsiglin táknar að
skoðun hafi farið fram.
Aðrar úttektir Fyrir utan úttektir á grásleppuhrognum annast matvælasviðið úttektir á óunnum fiski og flestum sjávarafurðum. Verklag við framkvæmd þessara úttekt er í samræmi við kröfur verkbeiðanda hverju sinni. Skoðunarmaður tekur þó ávallt stafrænar myndir af vörunni, sem hann skilar til verkbeiðanda á tölvutæku formi ásamt úttektarskýrslu.
Senda á facebook