Ökunám og próf
Hér er tæpt á helstu atriðum í ökunámi og nokkrum um prófin.
1. Ökukennsla
Fyrsta skrefið að ökuprófi er að fara í ökukennslu. Kennslan skiptist í bóklega kennslu og verklega kennslu. Til að hefja ökunám er því haft samband við ökukennara sem sér um framkvæmd verklegu kennslunnar og hefur umsjón með bóklegri fræðslu. Til að öðlast aukin ökuréttindi er haft samband við ökuskóla sem bjóða upp á slíkt nám og benda þeir á ökukennara til að annast verklega hlutann.
2. Umsókn um ökuskírteini
Í ökuskólum fæst sérstakt umsóknareyðublað sem nemandi fyllir út þegar ökunámi er að verða lokið. Umsókninni er skilað til sýslumanns (fyrir Reykjavík er það Sýslumaðurinn í Kópavogi ) og um leið er greitt fyrir ökuskírteinið, kr. 3.300. Sýslumenn yfirara umsóknir og gefa út próftökuheimild sé öllum skilyrðum fullnægt, og senda þær því næst til Frumherja hf. Þegar þær berast Frumherja hf. er heimilt að panta tíma í skriflegt próf.
3. Skrifleg próf
Þegar próftökuheimild berst Frumherja hf. frá sýslumönnum er hún skráð í gagnagrunn. Að því loknu er próftaka heimilt að panta próf. Venjulega er það próftaki sem sér um að panta próf. Ef próftaki stenst ekki próf er honum boðinn annar tími af prófdómara, en a.m.k. vika verður að líða á milli prófa. Skriflegt próf má taka mest tveimur mánuðum áður en próftaki hefur aldur til að öðlast ökuréttindi.
4. Verkleg próf
Þegar próftaki hefur staðist skriflegt próf er heimilt að panta verklegt próf. Venjulega er það ökukennari sem sér um að panta próf. Ef próftaki stenst ekki próf er honum boðinn annar tími af prófdómara, en a.m.k. vika verður að líða á milli prófa.