Þú ert hér: Forsíða > Þjónusta > Ökupróf > Verðskrá
Verðskrá
Óskað er eftir að próftakar greiði fyrir próf á afgreiðslustöðvum Frumherja hf. sem eru um land allt.

Á stærstu stöðunum eru skriflegu prófin jafnan tekin á starfsstöðvum Frumherja og eru verklegu prófin einnig gerð út frá þeim. Þá er best fyrir próftaka að greiða fyrir viðkomandi próf um leið og hann tekur það (áður en prófið er tekið).

Þar sem prófin eru haldin utan starfsstöðva Frumherja er best að vera búinn að greiða fyrir prófið á afgreiðslustaðnum áður en farið er í það (einum eða fleiri dögum áður). Þá þarf bara að framvísa greiðslukvittun til að fá heimild til að taka prófið. Í undantekningartilvikum er hægt að taka við greiðslu á prófstað, en slíkt veldur töfum á afgreiðslu og eru próftakar vinsamlega beðnir um að vera búnir að ganga frá greiðslu áður en þeir mæta í prófið.

Athugið: Í verði ökuprófa er innifalið umsýslugjald til Umferðarstofu (frá 10. janúar 2005). Gjaldið er kr. 500 á hvert skriflegt próf og kr. 1.000 á hvert verklegt próf. Heildarverð fyrir prófin verður þá sem hér segir (enginn virðisaukaskattur er af þessari þjónustu):

 Verðskrá (gildir frá og með 15. apríl 2010)
 
 Skriflegt próf - Almennt......................................................
 2.500,-
 Verklegt próf - Stórt bifhjól................................................
 7.300,-
 Verklegt próf - Fólksbifreið...............................................
7.300,-
 Verklegt próf - Fólksbifreið m/eftirv.................................
8.300,-
 Verklegt próf - Fólksbifreið í atv.rekstri (leigubifreið).....
11.400,-
 Verklegt próf - Vörubifreið................................................
11.400,-
 Verklegt próf - Vörubifreið m/eftirv...................................
11.400,-
 Verklegt próf - Hópbifreið.................................................
13.900,-
 Verklegt próf - Hópbifreið m/eftirv....................................
11.400,-
 Verklegt próf - Létt bifhjól..................................................
5.100,-
 Verklegt próf - Dráttarvél...................................................
 5.100,-


Frumherji Hesthálsi 6-8 110 Reykjavík Sími: 570 9000 Fax: 570 9002 Kennitala: 470297-2719 frumherji@frumherji.is