Gumbjörgunarbátur með neyðarsendir
Sjálfvirk losun (thanner-hammer-fenner eða olsen ) fjarstýrður >12m
Handlosun (Handsylgja)
Bjargvesti fyrir alla um borð (viðurkennd)
Vinnuflotgalli fyrir alla um borð
Mæli og skrásetningar skírteini
Stöðuleikagögn (fyrir þilfarsbáta)
Almanak (lög og reglur ,flóðatafla) >12m
Sjónauki >12m
Þjóðfáni
Þokulúður <12m og Flauta >12m
Vasaljós
Sjókort og siglingaáhöld
Leiðbeiningarspjöld
Bjarghringur>8m kasthringur<8m
Öryggislitur (allan hringinn) 0,02 m2 á hverri hlið
Áttaviti skoðaður annað hvert ár 100 mm >12m
Sjúkrakassi
Talstöð VHF (með neyðarhnappi eftir 1 jan 2011) leyfisbréf
Sjálvirk tilkynningarskylda STK eða AIS (AIS eftir 1 jan 2011)
Brunaviðvörunarkerfi
Þilfarsbátar og bátar sem eru yfirbyggðir að hluta skulu búnir brunaboða sem gefur til kynna með hljóðmerki við stýri ef hiti verður óeðlilega mikill í vélarúmi
Hver bátur með eldavél, ofn eða önnur tæki sem gætu valdið eldi í vistarverum, skal búinn
brunaboða sem gefur til kynna með hljóðmerki við stýri ef reykur kemur upp í vistarverunum.
Í frambyggðum bátum með lúkar fremst eða afturbyggðum bátum með káetu aftast, má
reykskynjarinn vera sjálfstæð eining með sambyggðum aflgjafa
Slökkvitæki (1st 6kg <10m 2 st >10m)
Slökkvikerfi
(Bátar með mestu lengd 8 metra og þar yfir skulu búnir föstum slökkvibúnaði í vélarúmi)
Hanblys 3 st <12m 4 st>12m
Flugeldar 3 st <12m 4 st>12m
Björgunarstigar
Hver bátur skal vera búinn föstum björgunarstiga sem er með neðsta þrep minnst 300 mm neðan við vatnslínu við eiginþyngd bátsins,
Hraðlokun
Á eldsneytislögnum skal vera loki sem næst eldsneytisgeymum sem gerir mögulegt að loka fyrir rennsli frá eldsneytisgeimum á aðgengilegum stað utan vélarúms
Loftrásir til vélar
Lokanlegar á bátum >8m stærð 7Xkw í sm2 eða 5Xhp í sm2
Neyðarútgangar
Allar vistarverur skulu hafa minnst tvær útgönguleiðir. Minni vistarverur mega þó vera með aðeins eina útgönguleið ef víst er að hún geti ekki lokast vegna elds í vélarúmi, eldhúsi eða af öðrum sökum.
Útgönguopin skulu vera í sitt hvorum enda vistarverunnar og vera þannig löguð að þau séu heppileg í neyðartilfellum. Ef nauðsynlegt þykir skulu vera stigar og handföng til að auðvelda útgang um opin.
Útgönguopin skulu ekki vera minni en:
450 · 450 mm eða 450 mm í þvermál ef þau eru hringlaga, á bátum allt að 12 m mestu lengd, en 600 · 600 mm eða 600 mm í þvermál ef þau eru hringlaga, á bátum 12 m og lengri.
Handrið og handföng
Um opin þilför þar sem vænta má umgangs manna skal setja skjólborð eða handrið. Hæð á skjólborðum og handriðum skal ekki vera minni en 750 mm. Bilið undir neðstu rim á handriði skal ekki vera meira en 230 mm. Bil á milli annarra rima skal ekki vera meira en 330 mm. Heimilt er að víkja frá kröfunum um millibil rima á lyftiþilfari sem aðeins er ætlað til vinnu við legufæri, festar o.þ.h. en millibilið skal þó aldrei vera meira en 400 mm.
Allir bátar skulu búnir fullnægjandi handföngum til að koma í veg fyrir að menn verði fyrir meiðslum eða falli fyrir borð.
Skálbúnaður á lúgur millibil 600mm
Merking
Hæð á bókstöfum í nafni og heimilisfangi skal ekki vera minni en sem hér greinir:
Á skipum minni en 30 brl. ............................................................................12 cm
Á seglbátum og öðrum bátum minni en 10 metrar mesta lengd ..................10 cm
Hæð á umdæmisbókstöfum og tölum skal ekki vera minni en sem hér greinir:
Á skipum minni en 30 brl. .............................................................................25 cm
Á bátum minni en 10 metrar mesta lengd ....................................................10 cm
Hæð á skráningarnúmeri skal ekki vera minni en sem hér greinir:
Á skipum minni en 30 brl. .............................................................................25 cm
Á bátum minni en 10 metrar mesta lengd ....................................................20 cm
Á seglbátum ..................................................................................................15cm
Neyðarstýri skal vera
Á bátum með tvær skrúfur þarf ekki neyðarstýri, ef
sýnt er með reynslusiglingu að örugglega má stjórna bátnum með skrúfunum. Á bátum
með tvö aðskilin stjórnkerfi sem hvort um sig má nota til að stjórna bátnum, þarf ekki
neyðarstýri ef stjórnkerfin eru ekki búin vökvaslöngum. Á bátum sem stjórnað er með utanborðsdrifi eða utanborðsvél þarf ekki neyðarstýri
Öryggi á netaspil
Salerni >10m bátar smíðaðir eftir 1984
Fyrirkomulag rafbúnaðar og merkingar
Rafhlöðum, rafstrengjum og öðrum rafbúnaði skal þannig komið fyrir að það sé
aðgengilegt til viðhalds, jafnvel þegar báturinn er í notkun. Teikningar af rafkerfi
bátsins skulu fylgja honum.
Allar merkingar skulu gerðar á sérstök merkispjöld með varanlegri áletrun
Rafhlöður
skal festa tryggilega í sýruheldum kössum sem skulu byrgðir að ofan
með einangrandi loki og svo frá þeim gengið að engin hætta sé á að þær losni
Varahlutir
reimar,hosur ,eldsneytis og olíusíur verkfæri
Legufæri
Hver bátur skal hafa akkerisbúnað skv. línuriti á mynd þannig fyrirkomið að varpa megi akkeri á öruggan hátt í skyndi.
Akkerisþyngd skv. línuritinu má deila á tvö akkeri, en þó skal annað akkerið vega minnst
2/3 af tilskilinni heildarþyngd. Bátar sem eru 8 metrar mesta lengd eða lengri skulu þó
búnir einu akkeri skv. línuritinu og öðru sem vegur 1/3 þeirrar þyngdar.
Hver bátur skal búinn minnst einni akkeriskeðju af lengd og með þvermáli skv.
línuritinu.
Hver bátur skal búinn minnst einni akkerisfesti og þremur dráttartógum af lengd og með
brotþoli skv. línuritinu.

Vél- og rafdælur
Austurkerfi skal vera á þann veg að mögulegt sé að dæla úr hverju vatnsþéttu hólfi
bátsins. Þó er heimilt að á litlum hólfum, svo sem stýrisvélarými, keðjukassa eða öðrum
hólfum af svipaðri stærð, sé frárennsli að austurdælu með loka utan við viðkomandi hólf.
Austurdælur skulu vera vél- eða rafknúnar. Austurkerfið má vera hvort heldur sem er eindæla og fastar soglagnir í hvert vatnsþétt hólf, með einstefnuloka á hverri lögn, eða
sérstök dæla til austurs úr hverju hólfi fyrir sig. Hverri austurdælu skal vera stjórnað úr
stýrishúsi.
Hver dæla skal ekki afkasta minna en tilgreint er í eftirfarandi töflu:
Lm 8 = 80 l/mín.
8 Lm 12 = 120 l/mín.
12 Lm 15 = 180 l/mín.
Handdælur
Handdæla skal vera til austurs úr vélarúmi og skal hún vera föst við bátinn og staðsett utan við vélarúmið og sem næst stjórnpalli.
Hver handdæla skal ekki afkasta minna en tilgreint er í eftirfarandi töflu:
Mesta lengd Lítri í slagi í metrum blöðku- stimpildæla dæla
< 8,0 m 0,5 0,7
8,0 -10,0 m 0,7 1,0
>10,0 m 0,9 1,25
Senda á facebook