Nýja skoðunarstofan ehf. var stofnuð 1993 og var fyrstu árin í eigu hagsmunaaðila innan sjávarútvegsins. Árið 1998 sótti fyrirtækið um faggildingu á starfsemi sinni, sem kallaði á breytingu á eignaraðild. Þetta leiddi til þess að Frumherji hf. keypti allt hlutafé fyrirtækisins.
Nýja skoðunarstofan var rekið sem sjálfstætt dótturfélag Frumherja hf. þar til þann 1. júní 2003 að ákveðið var að sameina félögin undir nafni Frumherja hf. Starfsemin heyrir nú undir matvælasvið Frumherja hf.
Sviðsstjóri matvælasviðs er Róbert Hlöðversson.