Þú ert hér: Forsíða > Þjónusta > Vinnslu og bátaskoðanir > Úttekt á vinnslu og vinnsluferlum
Úttekt á vinnslu og vinnsluferlum

Kaupendur sjávarafurða vilja í mörgum tilvikum að óháður aðili taki út vinnsluumhverfi og vinnsluferla hjá þeim framleiðendum, sem þeir eru í viðskiptum við. Skoðunarmenn matvælasviðs hafa allir áralanga reynslu af störfum innan sjávarútvegsins og hafa því mjög haldgóða þekkingu til að taka að sér slíkar úttektir. Úttekt af þessu tagi tekur a.m.k. einn vinnsludag. Skoðunarmaður gerir þá skoðun á húsnæði, búnaði og innra eftirliti á svipaðan hátt og hann er vanur að gera við faggildar skoðanir. Auk þess fylgist hann með hvernig starfsmenn fyrirtækisins standa að vinnslu, frágangi, pökkun og geymslu afurða, svo og þrifum og gerileyðingu. Verkbeiðandi fær síðan í hendur skýrslu skoðunarmanns ásamt myndum þar sem mat er lagt á viðkomandi fyrirtæki.

Frumherji Hesthálsi 6-8 110 Reykjavík Sími: 570 9000 Fax: 570 9002 Kennitala: 470297-2719 frumherji@frumherji.is