Auk þess að annast lögbundnar skoðanir hjá vinnsluleyfishöfum í umboði Fiskistofu býður Frumherji – Matvælasvið framleiðendum, kaupendum og seljendum sjávarafurða úttektir á fiski og fiskafurðum.
Grásleppuhrogn
Framleiðendur og seljendur grásleppuhrogna láta taka út mestan hluta grásleppuhrogna áður en þau eru seld úr landi. Þegar úttekt fer fram skulu a.m.k. vera liðnir 7 dagar frá því hrognin voru söltuð. Taka skal tunnur til vigtunar áður en þær eru opnaðar. Tunnur til vigtunar skal velja tilviljunarkennt. Venjulega er vigtuð 1 tunna af hverjum 10 og aldrei skal vigta minna en tvær tunnur úr hverju safni. Komi fram mikill munur á þyngd þessarar tveggja tunna skal vigta eina í viðbót og láta meðaltalið gilda sem vigt safnsins. Gæta skal þess að allt vatn sé sigið af hrognunum áður en þau eru vigtuð. Yfirleitt þurfa hrognin að vera ca. 20. mín. á sigtum..
Mæla skal pækilstyrk og hitastig hrogna í þeim tunnum sem viktaðar eru Eftir að vigtun tunna er lokið skal opna allar tunnur og skoða hrognin. Skoða skal hvort tunnur séu hreinar og athuga sérstaklega hvort óhreinindi séu á eða undir þéttigúmmíi á tunnulokinu. Einnig skal þess gætt að allar tunnu séu tryggilega lokaðar í upphafi skoðunar. Meta skal gæði hrognanna m.t.t. lyktar, lits og bragðs. Skoðunarmaður skal einnig fara ofaní tunnurnar og athuga þéttleika og hlutfall pækils og hrogna. Verði hann var við eitthvað óeðlilegt skal taka viðkomandi tunnu til hliðar og meta nánar. Ákvarða skal hvort tunnan skuli dæmast frá eða hvort ástæða þykir til að taka sýni og senda í efna-og gerlagreiningu. Skoðunarmaður skal þá taka sýni til greiningar í gerilsneytt ílát og koma því á rannsóknarstofu. Þegar niðurstaða greiningar liggur fyrir ákvarðar skoðunarmaður í samráði við verkanda hvað gera skuli við viðkomandi hrogn. Eftir að skoðun er lokið skal skoðunarmaður loka tunnunum dyggilega merkja með merkimiða og innsigla. Innsiglið táknar að skoðun á tunnunni hafi farið fram. Skoðunarmaður skráir niðurstöður skoðunar á matsvottorð. Vottorðið er í fjórriti og heldur verkandi einu, eitt fer til útflytjanda, eitt til skoðunarstofunnar og einu heldur skoðunarmaður.
Aðrar úttektir
Fyrir utan úttektir á grásleppuhrognum annast Frumherji hf. – Matvælasvið úttektir á óunnum fiski flestum sjávarafurðum að beiðni framleiðanda, seljanda eða kaupanda. Mikil aukning hefur orðið á þessari starfsemi á undanförnum árum og virðist sem hagsmunaaðilar séu í æ ríkari mæli að gera sér grein fyrir gildi slíkra úttekta. Við framkvæmd úttektar tekur skoðunarmaður myndir af vörunni bæði þeirri sem metin er í lagi og gölluð. Að úttekt lokinni ru niðurstöður skráðar á úttektarvottorð þar sem fram kemur bæði gæðamar, flokkun, þyngdir og annað sem verkbeiðandi hefur krafist að skoðað væri. Vottorðið er ðan sent til verkbeiðanda í tölvupósti ásamt myndum.