Þú ert hér: Forsíða > Veitur
Veitur

Þjónusta Frumherja við orku- og veitufyrirtæki er stór þáttur í starfsemi Frumherja. Henni má gróflega skipta þannig:

    • Faggiltar rafskoðanir og úttekt öryggisstjórnunarkerfa.
    • Faggiltar löggildingar mælitækja og prófanir.
    • Sölumælingar og sala raforku- og vatnsmæla.
    • Hreinsun, myndun og fóðrun fráveitulagna

Frumherji er stærsta faggilta skoðunar- og prófunarstofa landsins. Miklar kröfur eru gerðar til faggiltrar starfsemi varðandi hlutleysi, gegnsæi og rekjanleika vinnuferla og eru þessi atriði einkennismerki Frumherja.

 

Hjá Frumherja starfa einstaklingar með mikla tækniþekkingu og áralanga reynslu af þjónustu við veitur á Íslandi. Unnið er eftir gæðastjórnunarkerfi sem er faggilt á skoðunar- og prófunarþjónustunni samkvæmt IS0 17020 og 17025 stöðlunum. Í sölumælaþjónustunni er unnið samkvæmt ISO 9001 gæðastaðlinum.

 

Sérstakur bæklingur hefur verið gefinn út sem lýsir þessari þjónustu, Þjónusta fyrir veitur. Hér að neðan er samantekt úr honum.

 

Þjónusta fyrir rafveitur:

    • Rafskoðanir
    • Skoðun öryggisstjórnunarkerfa
    • Sölumælaþjónusta
    • Prófanir mæla

Þjónusta fyrir hitaveitur:

    • Sölumælaþjónusta
    • Prófanir mæla

Þjónusta fyrir vatnsveitur:

    • Sölumælaþjónusta
    • Prófanir mæla

Þjónusta fyrir fráveitur:

    • Hreinsibílar

 

Rafskoðanir og öryggisstjórnunarkerfi

 

Frumherji sinnir rafskoðunum og úttektum á öryggisstjórnunarkerfum flestra stóriðjufyrirtækja á Íslandi. Auk þess þjónustar fyrirtækið stærri og smærri rafveitur, smávirkjanir og aðra viðskiptavini.  Þjónustunni má skipta i eftirfarandi þætti:

    • Öryggisstjórnunarkerfi: Faggilt skoðun á öryggisstjórnunarkerfum rafveitna og rafverktaka.
    • Úrtaksskoðanir: Faggiltar úrtaksskoðanir á lágspennu og háspennu ásamt innfærslu skýrslna í DMM viðhaldskerfið.
    • Innri skoðanir: Innri skoðanir á lágspennu og háspennu ásamt innfærslu skýrslna í DMM viðhaldskerfið. Fái rafveitan faggilta skoðunarstofu til þess að sjá um innri skoðanir, jafngildir það um leið ytri skoðun (úrtaksskoðun). Veitan fær faglega skoðun á öllu rafkerfinu og sparar sér um leið kostnað við úrtaksskoðanir.
    • Hitamyndataka raflagna: Aukið rafmagnslegt öryggi. Veitunni býðst að fá raflagnirnar hitamyndaðar um leið og faggilt skoðun fer fram eða sem sérverkefni. Hægt er að greina hættumerki sem ekki sjást með berum augum eins og lausar tengingar og komast þannig hjá fjárhagslegu tjóni.

Skoðunarmenn hafa víðtæka og langa reynslu af rafskoðunum. Fyrir utan margra ára reynslu við skoðunarstörf hafa starfsmenn bakgrunn í rekstri raforkuvirkja, hönnun og eftirlitsstörfum. Nánari lýsingu má finna hér á heimasíðunni um rafmagnssvið.

 

Sölumælingar og sala raforku- og vatnsmæla

 

Frumherji á og rekur vel á annað hundrað þúsund raforku- og vatnsmæla. Þjónustan felst í að útvega sölumælingar fyrir m.a. stærstu dreifiveitu landsins og nokkrar minni veitur. Til viðbótar býður Frumherji veitum margskonar þjónustu við mælasöfn þeirra auk sölu á mælum. Þjónustunni má skipta í eftirfarandi þætti:

    • Sölumælingar: Um er að ræða leigu á mælum, uppsetningu, niðurtekt og mælaskipti. Veita losnar því við eftirlit með mælum og fjárbindingu í mælabúnaði, mælinákvæmni er alltaf tryggð og mánaðarlegur kostnaður verður þekktur.
    • Umsjón með eldri mælum í eigu veitu: Ef veita ákveður að fela Frumherja sölumælingar er boðið upp á umsjón með þeim mælum sem til staðar eru í kerfinu. Frumherji heldur þá skrá um mælana og tryggir endurnýjun og reglubundið eftirlit með þeim eftir það.
    • Fjarmælingar: Frumherji býður upp á ýmsar lausnir í fjarmælingum fyrir veitur, allt frá reglubundnum álestri mæla sem
      erfitt er að nálgast og upp í rauntímaálestur allan sólarhringinn.
    • Sala á mælum: Frumherji hefur lengi verið stór innflutningsaðili á sölumælum til eigin nota, en sala á sölumælum til veitna hefur aukist undanfarin ár.

Mælasetjarar og aðrir starfsmenn eru með margra ára reynslu og vinna eftir þróuðu upplýsingakerfi sem tryggir skilvirk og vönduð vinnubrögð. Öll samskipti við veitur geta verið rafræn og beintengd upplýsingakerfum þeirra. Nánari lýsingu má finna hér á heimasíðunni um orkusölumæla.

 

Löggildingar og mælaprófanir

 

Prófunarstofa Frumherja annast löggildingar og prófanir mælitækja af ýmsu tagi. Megin uppistaðan hefur verið í löggildingum voga og eldsneytismæla en svo bættust prófanir raforku- og vatnsmæla við þegar keyptir voru fullkomnir prófunarbekkir fyrir þá. Prófbekkirnir eru þeir einu sinnar tegundar í landinu og voru fyrst aðallega notaðir til prófunar á sölumælum Frumherja en þjónustan er nú í boði fyrir allar veitur. Hún felst í eftirfarandi:

    • Stakar prófanir mæla: Boðið er upp á staðlaðar prófanir mæla í samræmi við opinberar nákvæmniskröfur. Notast t.d. við prófanir eftir viðgerð, ef grunur er um bilun, við niðurtektarprófanir, úrtaksprófanir eða löggildingu.
    • Skilgreining safna: Mælasöfn eru skilgreind samkvæmt ákveðnum reglum. Falli mælar ekki í söfn er hægt að ákveða stakar prófanir.
    • Gera úrtök úr söfnum: Úr mælasöfnum eru tekin úrtök mæla sem veitan sér um að sækja og koma í prófun.
    • Ákveða afdrif safna: Að loknum prófunum í prófbekkjum er tekin ákvörðun um afdrif safna, þ.e. hvort framlengja megi löggildingu eða fella þurfi söfn.

Prófunarmenn hafa langa og víðtæka reynslu sem kristallast í faglegum vinnubrögðum og góðri þekkingu á aðstæðum og óskum viðskiptavina. Nánari lýsingu má finna hér á heimasíðunni um prófunarstofuna.

 

Fráveita – alhliða eftirlit og viðhald

 

Frumherji býður upp á heildarlausnir á sviði eftirlits og viðhalds á fráveitulögnum fyrir sveitarfélög og fyrirtæki í gegnum dótturfélag sitt Hreinsibíla. Það hefur verið leiðandi í nýjum lausnum á sviði eftirlits og viðhalds fráveitulagna í yfir 20 ár og endurnýjað tugi kílómetra af lögnum með fóðrun án uppgraftrar. Helstu verkefni Hreinsibíla eru þessi:

    • Hreinsun lagna og dælustöðva: Stórir og öflugir bílar. Hreinsun lagna og dælustöðva fyrir stærstu veitufyrirtæki landsins í mörg ár.
    • Stíflulosun: Hreinsun niðurfalla og fitugildra, stíflulosun og reglubundið eftirlit lagna.
    • Ástandsgreining: Myndun, greining og skýrslugerð þar sem sett er fram áætlun um reglubundið eftirlit fráveitulagna næstu árin.
    • Brunnaviðgerðir: Með sérstökum aðferðum má endurnýja brunna án uppgraftrar (Permacast) sem sparar mikinn kostnað við slíkt.
    • Fóðrun lagna: Fóðrun stofnlagna í fráveitum auk heimlagna, allt án uppgraftrar. Hægt er að fóðra bæði lítinn hluta lagnar (stök skemmd) eða alla lögnina. Áratuga ending tryggð og lögnin eins og ný.

Tækjabúnaður Hreinsibíla er fyrsta flokks og starfsmenn fyrirtækisins búa yfir mikilli reynslu á sínu sviði. Fyrirtækið hefur ávallt verið í farabroddi hérlendis í nýjustu tækilausnum í fráveitumálum. Markmið Hreinsibíla er að halda áfram að þróa og innleiða hagkvæmar lausnir fyrir viðskiptavini sína. Nánari lýsingu má finna á heimasíðu Hreinsibíla.

 

Senda á facebook

Þessa stundina eru eftirfarandi störf laus til umsóknar:

Ökutækjasvið: Skoðunarmaður á Selfoss

Sækja um

Frumherji Hesthálsi 6-8 110 Reykjavík Sími: 570 9000 Fax: 570 9002 Kennitala: 470297-2719 frumherji@frumherji.is