Frumherji hf. býður upp á faggiltar skoðanir á gæðastjórnunarkerfum hönnuða, hönnunarstjóra, byggingastjóra og iðnmeistara.
Hægt er að sækja um skjala- og virkniskoðun samtímis fyrir gæðastjórnunarkerfi sem hafa verið í rekstri um nokkurn tíma.
- Panta skoðun (vefbeiðni)
- Verðskrá þjónustu (pdf skjal)
Ferli skjalaskoðunar
Við skalaskoðun er farið yfir hvort gæðastjórnunarkerfið uppfylli þær kröfur sem settar eru fram í gildandi lögum um mannvirki og byggingarreglugerð ásamt leiðbeiningum og skoðunarhandbók Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um gæðastjórnunarkerfi. Farið er yfir hvort gert hafi verið ráð fyrir vistun skjala sem viðkoma starfsemi og byggingarleyfisskyldum verkum viðkomandi aðila og hvort í kerfinu sé lýsing á innra eftirliti með eigin verkum ásamt gátlista til notkunar við eftirlitið. Í kerfi byggingarstjóra er einnig gerð krafa um lýsingu á lokaúttekt og undirbúningi hennar í samræmi við kafla 3.9 í byggingarreglugerð, þar sem meðal annars er gengið frá skýrslu yfir allar úttektir og frágangi handbókar. Bent er á að Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur gefið út leiðbeiningar nr. 16.1.1 um gerð handbókar mannvirkis.
Við gerð gæðastjórnunarkerfa er bent á leiðbeiningar, skoðunarhandbók og skoðunareyðublöð Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um gæðstjórnunarkerfi.
Einnig er hægt að panta skoðun í tölvupósti á netfanginu This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. eða í síma 570 9340. Vinsamlega látið nafn og símanúmer fylgja beiðni í tölvupósti.
Athygli er vakin á því að einnig þarf að sækja um skráningu gæðastjórnunarkerfis hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (sjá umsókn fyrir einstakling og umsókn fyrir fyrirtæki).