Þú ert hér: Forsíða > Fréttir
Frumherji opnar skoðunarstöð á Granda
14.10.2009 Frumherji hf mun í byrjun nóvember næstkomandi opna nýja skoðunarstöð fyrir bíla að Hólmaslóð 2 í Reykjavík. Stöðinni er ætlað að auka þjónustuframboð Frumherja hf í vesturhluta borgarinnar og á Seltjarnarnesi.

Stöðin að Hólmaslóð verður útbúin þeim besta tækjabúnaði til skoðana sem völ er á og aðstaða fyrir viðskiptavini verður fyrsta flokks. Hún er vel staðsett í nálægð við íbúahverfi í miðbæ, vesturbæ og á Seltjarnarnesi ásamt því að standa í námunda við öfluga þjónustukjarna í miðborginni og vestur á Granda.

Frumherji hf hefur miklar væntingar til fyrirhugaðs reksturs á Granda og vonar að viðskiptavinir taki stöðinni vel. Senda á facebook

Frumherji Hesthálsi 6-8 110 Reykjavík Sími: 570 9000 Fax: 570 9002 Kennitala: 470297-2719 frumherji@frumherji.is