Þú ert hér: Forsíða > Fréttir
Frumherji afhendir fyrstu bráðabirgðaakstursheimildina
15.4.2009 Frá og með miðvikudeginum 1. apríl voru gerðar breytingar á meðferð fyrstu bráðabirgðaakstursheimildarinnar til aksturs bifreiðar. Breytingin felur í sér að nú þurfa próftakar ekki lengur að leita til sýslumanna eftir staðin próf heldur afhenda prófdómarar bráðabirgðaskírteinin á prófstað. Þessi breyting kemur sér einkar vel fyrir próftaka þegar próf eru t.d. haldin utan venjulegs afgreiðslutíma embættanna og spara einnig tíma og fyrirhöfn fyrir alla sem að málinu koma. Rétt er að benda á að breytingin nær eingöngu til þeirra sem sóttu um ökuskírteini eftir 1. apríl og eru að fá sitt fyrsta ökuskírteini.

Það hefur lengi verið markmið Frumherja hf. að ná fram þessari breytingu sem ýmsir aðilar hafa undirbúið að undanförnu. Þó ber að þakka Ökukennarfélagi Íslands sérstaklega fyrir þeirra aðkomu að málinu.

Á myndinni er Arnar þór Sveinsson (t.v.) að taka við fyrstu bráðabirgðaakstursheimildinnni úr höndum Hafþórs R Gestssonar prófdómara. Senda á facebook

Frumherji Hesthálsi 6-8 110 Reykjavík Sími: 570 9000 Fax: 570 9002 Kennitala: 470297-2719 frumherji@frumherji.is