Í mars 2001 keypti Frumherji hf. alla sölumæla Orkuveitu Reykjavíkur fyrir rafmagn, heitt vatn og kalt vatn og hefur leigt þá til OR síðan þá. Stofnað var nýtt svið um þessa starfsemi, Orkusvið.
Starfsemi sviðsins hefur með höndum umsýslu sölumæla fyrir raforku og vatn. Um er að ræða allt frá innkaupum til förgunar mælanna, þ.e. innkaup, uppsetningu, niðurtekt, útskipti, viðgerðir, álestur og förgun. Orkusvið á mælana og leigir til orkuveitna samkvæmt samningi þar um.
Engar breytingar urðu gagnvart viðskiptavinum OR við þessa breytingu, þeir snúa sér áfram til orkuveitunnar til að panta mæla, fá álestra eða tilkynna bilanir.
Sviðsstjóri orkusviðs er
Jón Hjalti Ásmundsson.