Skoðanir og þjónusta
Skoðun neysluveitna
Neysluveitur eru allar þær veitur nefndar þar sem aðflutt raforka kemur á lágspennu frá rafveitu. Dæmi um slíka veitu er raflögn og rafbúnaður í íbúðarhúsnæði, iðnaðarhúsnæði, skólum, stofnunum o.fl.
Þegar rafverktaki hefur lokið við raflögn í neysluveitu ber honum að tilkynna það til Brunamálastofnunar, en hún ákveður hvort viðkomandi raflögn fer í skoðun hjá skoðunarstofu. Slíkar skoðanir eru fjármagnaðar af Brunamálastofnun.
Ef ný raflögn er ekki valin til skoðunar hjá Brunamálastofnun og eigandi óskar samt sem áður eftir skoðun getur hann pantað skoðun beint hjá rafmagnssviði. Einnig getur eigandi óskað eftir skoðunum á gömlum raflögnum ef hann vill fullvissa sig um að ástand raflagna sé viðunandi. Í þeim tilfellum hefur hann samband við tæknistjóra rafmagnssviðs Frumherja hf. og pantar skoðun. Hægt er að semja fyrirfram um verð og umfang skoðunar.
Skoðun raforkuvirkja
Raforkuvirki eru mannvirki til vinnslu og dreifingar rafmagns. Skoðanir á raforkuvirkjum eru því fyrst og fremst gerðar fyrir rafveitur og iðnaðarveitur, en þeim ber að skoða raforkuvirki sín reglulega. Hægt er að semja við rafmagnssvið Frumherja hf. um reglulegar skoðanir slíkra virkja.
Skoðun öryggisstjórnunarkerfa rafverktaka
Allir löggiltir rafverktakar skulu hafa virkt öryggisstjórnunarkerfi sem tryggir viðskiptavinum þeirra að starfsemi rafverktakanna sé samkvæmt öryggiskröfum laga og reglugerða. Öryggisstjórnunarkerfi rafverktakanna er undir reglulegu eftirliti Neytendastofu en hún sér um að senda skoðunarstofu á verkstæði rafverktaka til að skoða hvort aðstaða, búnaður, verkskráninig og eftirlit rafverktaka með eigin verkum sé fullnægjandi. Rafverktakar geta samið beint við rafmagnssvið Frumherja hf. um reglulegt eftirlit með öryggisstjórnunarkerfi sínu.
Skoðun öryggisstjórnunarkerfa rafveitna, einkarafstöðva og iðjuvera
Rafveitum og iðjuverum ber að hafa skilgreint öryggisstjórnunarkerfi til að tryggja öryggi eigin raforkuvirkja og fullnægjandi stjórn á rekstri þeirra. Brunamálastofnun hefur yfireftirlit með öryggisstjórnunarkerfum rafveitna og iðjuvera.
Rafveitu eða iðjuveri er heimilt að semja við rafmagnssvið Frumherja hf. um að skoðunarstofan annist lögbundnar skoðanir á öryggisstjórnunarkerfinu ásamt skoðunum á nýjum og breyttum virkjum og virkjum í rekstri.