Þú ert hér: Forsíða > Þjónusta > Matvælasvið > Faggiltar skoðanir
Faggiltar skoðanir

Við undirritun samningsins um EES gengust Íslendingar undir öll ákvæði tilskipunar ESB um hollustuhætti við framleiðslu og markaðssetningu sjávarafurða og skuldbundu sig jafnframt að taka ákvæðin inn í íslenska löggjöf. Hér á landi er framkvæmd eftirlitsins í höndum faggildra skoðunarstofa, sem hlotið hafa starfsleyfi frá Fiskistofu. Meginmarkmið þess opinbera eftirlits sem hér um ræðir er að tryggja neytendum innan Evrópska efnahagssvæðisins fiskafurðir sem eru heilnæmar og öruggar til neyslu.

Til þess að geta selt fiskafurðir á Evrópska efnahagssvæðið þarf framleiðandi vörunnar að hafa undir höndum gilt vinnsluleyfi, sem útgefið er af Fiskistofu. Með útgáfu leyfisins eru íslensk stjórnvöld að tryggja það gagnvart Evrópusambandinu að íslensk fiskvinnslufyrirtæki, sem flytja út afurðir til aðildaríkjanna uppfylli kröfur ESB. varðandi heilnæmi og öryggi afurðanna. Hlutverk skoðunarstofunnar er síðan að fylgjast með því að framleiðandinn uppfylli þær kröfur sem standa að baki vinnsluleyfisins á hverjum tíma.

Hlutverk hagsmunaaðila

Hlutverk ESA í kerfinu er að hafa eftirlit með að íslensk stjórnvöld séu sú í raun að uppfylla kröfur ESB. Ekki er talið nægjanlegt að þetta standi á pappír heldur koma hingað reglulega eftirlitsmenn frá ESA, sem heimsækja þá nokkur fiskvinnslufyrirtæki. Á grundvelli þeirra heimsókna metur ESA hvernig íslensk stjórnvöld hafi staðið við sinn hluta samningsins.

Hlutverk Fiskistofu er m.a . að setja fram kröfur laga og reglugerða í formi skoðunarhandbóka, sem skoðunarmenn nota við skoðanir sínar. Frumskoðun fyrirtækja sem eru að hefja rekstur er framkvæmd af Fiskistofu. Skoðunarstofan er valdalaus og gegnir einungis því hlutverki að framkvæma skoðanir samkvæmt reglum og fyrirmælum Fiskistofu og því eru allar stjórnvaldsaðgerðir s.s. útgáfa og svifting vinnsluleyfa er í höndum Fiskistofu.

Eftirlit með skoðunarstofum

Skoðunarstofurnar eru undir eftiliti Fiskistofu og sænsku faggildingarstofunnar SWEDAC. Skoðunarstofan er faggilt samkvæmt staðlinum ÍST EN ISO/IEC 17020:2004 en honum er fyrst og fremst ætlað að tryggja sjálfstæði, hlutleysi, ráðvendni og hæfni skoðunarstofunnar. SWEDAC heimsækir skoðunarstofuna árlega og gerir úttekt á gæðakerfi hennar og hæfni skoðunarmanns. Fiskistofa er SWEDAC til aðstoðar við úttekt á skoðunarmanni auk þess sem eftirlitsmenn hennar fara í fjölda samanburðarskoðanir til vinnsluleyfishafa til að fylgjast með hvort skoðunarmenn skoðunarstofunnar séu að framkvæma skoðanir sínar samkvæmt settum kröfum.

Skoðunarferillinn

Til að fá vinnsluleyfi er framleiðendum og útgerðaraðilum skylt að gera skriflegan þ.jónustusamning við faggilda skoðunarstofu. Eftir að samningur er kominn á er það á ábyrgð skoðunarstofunnar að framkvæma skoðanir hjá landvinnslum og vinnsluskipum á þriggja mánaðar fresti og hjá bátum yfir 15 brt. tvisvar á ári.

Skoðunarstofan framkvæmir skoðun í samræmi við skoðunarhandbækur Fiskistofu. Skoðunaratriðin hafa mismikið vægi og skiptast í A-frávik og F-frávik. F-frávik þarf að vera búið að lagfæra áður en næsta skoðun fer fram. Skrái skoðunarmaður A-frávik (alvarlegt frávik) á skoðunarvottorðið þarf hann að faxa vottorðið til Fiskistofu innan sólarhrings eftir að úttekt lýkur. Í kjölfarið fær vinnsluleyfishafi bréf frá Fiskistofu þar sem þess er krafist að gripið verði til tafarlausra úrbóta varðandi umrætt frávik. Einnig má vinnsluleyfishafi eiga von á að fá heimsókn frá eftirlitsmanni Fiskistofi sem staðfestir hvort úrbótum sé lokið. Hafi úrbótum vegna F-frávika ekki verið lokið í næstu heimsókn skoðunarstofu skráir skoðunarmaður A-frávikið “úrbótum ekki lokið”. Þetta A-frávik fer síðan í sama farveg og önnur A-frávik.

Skoðunarstofan skráir öll skoðunarvottorð í tölvu og sendir á tölvutæku formi til Fiskistofu innan við viku eftir að skoðun lýkur. Öll skoðunarvottorð eru þannig geymd á tölvutæku formi í gagnagrunnum Fiskistofu og skoðunarstofunnar

Senda á facebook

Frumherji Hesthálsi 6-8 110 Reykjavík Sími: 570 9000 Fax: 570 9002 Kennitala: 470297-2719 frumherji@frumherji.is