Umgjörð ökunáms orðin stafræn

júlí 17, 2023

Við vekjum athygli á því að nú er umgjörð almenns ökunáms (B-réttinda) orðin stafræn.

Allir ferlar sem ökunemar, ökukennarar og ökuskólar nýta vegna námsins eru orðnir stafrænir og pappír heyrir því að mestu sögunni til. Markmiðið með verkefninu er að einfalda ökunámsferlið, bæta þjónustu og fækka snertiflötum milli stofnana. 

Hvað er nú hægt að gera stafrænt?

Nú hafa verið innleiddir fjölmargir stafrænir ferlar í gegnum island.is, með tengingum við þær stofnanir sem að ökunáminu koma. Þetta þýðir að nú geta:

  • Ökunemar sótt um að hefja ökunám á netinu, fylgst með framvindu þess og sótt stafrænt ökuskírteini þegar þeir hafa staðist verklegt próf.
  • Ökukennarar staðfest með stafrænum hætti ökutíma, akstursmat og að nemandi sé tilbúinn í æfingaakstur.
  • Ökuskólar staðfest stafrænt að nemandi hafi lokið ökuskóla.
  • Leiðbeinendur í æfingaakstri sótt stafrænt um að gerast leiðbeinendur. 

Umsóknir og staðfestingar má finna á island.is/okunam. Ökuneminn hefur aðgang að sinni ökunámsbók á Mínum síðum á island.is. 

Næstu skref:

  • Sýslumenn geti nýtt undirskrift og mynd úr vegabréfi fyrir útgáfu ökuskírteinis. 
  • Undirbúningur hjá Samgöngustofu fyrir rafræna próftöku í bóklegum ökuprófum. 
  • Áframhaldandi samstarf um stafræna ferla fyrir önnur ökuréttindi.

Verkefnið er í umsjón Samgöngustofu sem hefur unnið það í samstarfi við innviðaráðuneytið, sýslumannsembættin, Ríkislögreglustjóra og Stafrænt Ísland.

Frétt var birt á vef stjórnarráðsins- 15.6.2023

Deila frétt

Facebook
Twitter
LinkedIn

Opnun á Einhellu 1a

Á föstudaginn síðastliðinn opnaði formlega ný skoðunarstöð Frumherja að Einhellu 1a í Hafnarfirði. Formaður bæjarráðs Hafnarfjarðar Valdimar Víðisson klippti á borða ásamt Orra..

20. febrúar 2024

Umgjörð ökunáms orðin stafræn

Við vekjum athygli á því að nú er umgjörð almenns ökunáms (B-réttinda) orðin stafræn. Allir ferlar sem ökunemar, ökukennarar og ökuskólar nýta vegna námsins..

17. júlí 2023

Bifreiðaskoðun
Ökupróf
Mannvirki og veitur
Fyrirtækið

Staðsetning - Einhella

Bóka tíma í einstaklings- eða túlkapróf

Til þess að bóka tíma í einstaklings- eða túlkapróf þarf að fylla út formið hér að neðan. Haft verður samband við þig með næsta lausa tíma.

Einstaklings- eða túlkapróf

Samskipti kunna að vera vistuð í gagnagrunni okkar. Sjá nánar um meðferð persónuupplýsinga hér

Bóka tíma í lespróf

Til þess að bóka tíma í lespróf þarf að fylla út formið hér að neðan. Haft verður samband við þig með næsta lausa tíma.

Lespróf

Samskipti kunna að vera vistuð í gagnagrunni okkar. Sjá nánar um meðferð persónuupplýsinga hér

Sparaðu þér sporin!

Núna getum við sótt bílinn og skilað honum skoðuðum heim eða í vinnuna á höfuðborgarsvæðinu. 2.300 kr. bætast við skoðunargjaldið.

Þú getur pantað skutl með því að fylla út formið hér að neðan.

Panta skutl